Eyja

Eyja eftir leikhópinn O.N. í samstarfi við Þjóðleikhúsið og MurMur Productions.

Íslenskt verk um ólíka heima og þrána eftir því að brjóta múra.

Þrjú systkini koma saman við dánarbeð föður síns. Um leið og þau neyðast til að takast á við hina nýju stöðu reyna þau að gera upp gömul mál og berja í brestina sem komnir eru í fjölskyldutengslin. En það er hægara sagt en gert. Yngri bróðirinn Hrafn er heyrnarlaus, heyrandi tvíburasystir hans Ugla talar reiprennandi táknmál en það gera hvorki faðirinn né eldri bróðirinn Valdimar. Samband systkinanna við föður sinn er því gjörólíkt og viðbrögð þeirra nú þegar þau standa á þessum krossgötum ófyrirsjáanleg eftir því.

Og það er þá sem þau komast að dálitlu sem snýr lífi þeirra alveg á hvolf.

Áhrifamikið verk um tengsl og tengslaleysi, sorgarferli, samskipti og löngunina eftir því að öðlast hlutverk í lífi sinna nánustu.

O.N. sviðslistahópur, sem samanstendur af heyrnarlausu og heyrandi listafólki, setur upp tvítyngdar sýningar, jafn aðgengilegar fyrir þá sem hafa íslenska tungu og íslenskt táknmál að móðurmáli. Eyja er fyrsta leiksýning sinnar tegundar sem sýnd er í Þjóðleikhúsinu og brýtur þannig blað í sögu leikhússins.

Framleiðandi: MurMur Prodcutions – Kara Hergils
Sviðslistahópurinn O.N. í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Verkefnið er styrkt af Menningarráðuneytinu úr Sviðslistasjóði, Launasjóði sviðslistafólks og Styrktarsjóði Bjargar Símonardóttur.

Eyja

Höfundar: Sóley Ómarsdóttir, Ástbjörg Rut Jónsdóttir
Leikstjórn: Andrea Elín Vilhjálmsdóttir
Hljóðmynd: Hreiðar Már Árnason
Leikmynd og búningar: Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir
Lýsing: Kjartan Darri Kristjánsson
Listrænn ráðunautur: Hjördís Anna Haraldsdóttir
Hár, förðun og aðstoð við framleiðslu: Hanna Lára Ólafsdóttir
Tæknimaður og aðstoðarleikstjóri: Magnús Thorlacius
Dramatúrg handrits: Andrea Elín Vilhjálmsdóttir
Smiður: Hrafnkell Guðmundsson
Framleiðandi: MurMur Productions, Kara Hergils

Previous
Previous

Marat Sade

Next
Next

Forspil að framtíð