Ég dey

Ljósmynd: Saga Sigurðardóttir

Ljósmynd: Saga Sigurðardóttir

Ég dey eftir Charlotte Bøving.

Það var ekki fyrr en Charlotte Bøving varð fimmtug að hún áttaði sig á því að hún myndi einhvern tíman deyja. Henni fannst ótrúlegt að hafa náð að lifa svona lengi án þess að átta sig á því að einn daginn myndi lífið taka enda. Í sýningunni Ég dey skoðaði Charlotte lífið frá sjónarhóli dauðans og dauðann frá sjónarhóli lífsins. 

Ég dey var þriðji einleikur Charlotte Bøving. Hinir fyrri eru Hin smyrjandi jómfrú (2002) og Þetta er lífið – og nu er kaffen klar (2010). Charlotte hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga fyrir verk sín. Fyrri einleikir hennar voru báðir tilnefndir til Grímunnar og hlaut hún m.a. Grímuna fyrir Lífið, bæði sem Barnaleikrit ársins og Sproti árins.

Ég dey var frumsýnt 10. janúar 2019 í Borgarleikhúsinu.

Ég dey
Höfundur og flytjandi: Charlotte Bøving
Leikstjórn: Benedikt Erlingsson
Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Dramatúrg: Gréta Kristín Ómarsdóttir
Lýsing og hljóð: Garðar Borgþórsson
Grafík og myndbandavinnsla: Steinar Júlíusson
Markaðssetning: Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Previous
Previous

Club Romantica

Next
Next

Endastöð - upphaf