Co za poroniony pomysł

Plaggat: Gréta Þorkelsdóttir

Plaggat: Gréta Þorkelsdóttir

Co za poroniony pomysł eftir PólíS í samstarfi við Tjarnarbíó.

„Þau hafa ekki hugmynd um hversu slæm þessi hugmynd er!“

Kuba er kokkur á veitingastaðnum Skál en dreymir um að verða sjónvarpskokkur. Ola er spunaleikkona frá Varsjá sem þráir að finna ástina á Íslandi. Óli er íslenskur leikari sem er að læra pólsku á duolingo. Þegar Óli tekur eftir hvað pólskar kvikmyndir laða að sér marga í bíó dettur honum í hug að reyna að búa til vinsæla leiksýningu á pólsku og fær Kuba og Olu með. Saman leiða þau áhorfendur í gegnum þessa einlægu gamansýningu þar sem fjallað er um löngun okkar til að tengjast: Að tengjast ókunnu landi, tengjast okkar á milli, tengjast á netinu eða tengjast í gegnum góðan mat. Úff, hvað þetta er slæm hugmynd!

Verkið var frumsýnt í október 2020.

Co za poroniony pomysł
Aktorzy / leikarar: Jakub Ziemann, Aleksandra Skołożyńska, Ólafur Ásgeirsson
Reżyser / Leikstjórn: Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
Dramaturg / Dramatúrg: Birnir Jón Sigurðsson
Scenografia & Kostiumy/ Leikmynd og búningar: Þórdís Erla Zoëga
Dźwięk / Tónlist: Kristinn Smári Kristinsson
Oświetlenie sceniczne / Ljósahönnun: Kjartan Darri Kristjánsson
Projekt graficzny / Grafísk hönnun: Gréta Þorkelsdóttir
Pomoc przy tłumaczeniu / Aðstoð við þýðingu: Nina Słowińska
Kynningarstjóri: Kara Hergils

Previous
Previous

Neind Thing

Next
Next

eyður