Hópurinn á bak við verkið Þú átt leik auglýsir opnar prufur fyrir flytjendur verksins laugardaginn 3. október. Leitað er að tveimur flytjendum. 

Þú átt leik er þátttökuverk fyrir fólk á öllum aldri og fjallar um leik barna. Verkið er eftir Aude Busson, Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Björn Kristjánsson og Emblu Vigfúsdóttur. Það er framleitt af MurMur Productions. Verkið er unnið í lotum en frumsýning í Tjarnarbíó haustið 2027. 

Hæfniskröfur:

  • Leikgleði

  • Ánægja og reynsla af því að vinna með börnum

  • Reynsla í samtímadansi, sirkus eða öðru líkamlegu listformi

Æskilegt:

  • Tónlistarbakgrunnur

Áætlað æfingar- og sýningartímabil:

  • Lok október / nóvember 2026 - stakir dagar í vinnudvöl í Ásmundarsal.

  • 4. til 22. Janúar 2027 - æfingar á Dansverkstæði

  • 22. febrúar til 14. mars 2027 - Æfingar í Tjarnarbíó

  • 8. til 12. mars 2027 - Skólasýningar

  • Lok ágúst, byrjun september 2027 - Enduræfingar á sviði

  • Byrjun september 2027 - Frumsýning

Flytjendur þurfa að vera laus til mögulegra sýninga í aprí og  maí sem og um helgar í september og október. Greidd eru tveggja mánaða listamannalaun auk sýningarlauna.

Prufurnar fara fram í tveggja tíma vinnustofu laugardaginn 3. október frá kl. 10 - 12 á Dansverkstæðinu. Áhugasöm geta skráð sig í hér.

Nánari upplýsingar veitir Aude Busson á netfanginu bussonaude@gmail.com og í síma 843 0581