ÞÚ ÁTT LEIK
OPNAR PRUFUR
Hópurinn á bak við verkið Þú átt leik auglýsir opnar prufur fyrir flytjendur verksins. Leitað er að tveimur flytjendum.
Þú átt leik er þátttökuverk fyrir fólk á öllum aldri og fjallar um leik barna. Verkið er eftir Aude Busson, Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Björn Kristjánsson og Emblu Vigfúsdóttur, framleitt af MurMur Productions. Unnið verður í lotum en frumsýning í Tjarnarbíó haustið 2027.
Hæfniskröfur:
Leikgleði
Ánægja af að vinna með börnum
Reynsla af því á að vinna með börnum
Reynsla í samtímadansi, sirkus eða öðru líkamlegu listformi
Æskilegt:
Tónlistarbakgrunnur
Áætlað æfingar- og sýningartímabil:
Lok október / nóvember 2026 - stakir dagar í vinnudvöl í Ásmundarsal.
4. - 22. Janúar 2027 - æfingar á Dansverkstæði
22. febrúar - 14. mars 2027 - Æfingar í Tjarnarbíó
8. - 12. mars 2027 - Skólasýningar
Lok ágúst, byrjun september 2027 - Enduræfingar á sviði
Byrjun september 2027 - Frumsýning
Flytjendur þurfa að vera laus til mögulegra sýninga í aprí og maí sem og um helgar í september og október. Greidd eru tveggja mánaða listamannalaun auk sýningarlauna.
Nánari upplýsingar veitir Aude Busson í síma 843 0581.