BRUM

BRUM_v1.png

BRUM eftir Trigger Warning í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur.

BRUM er hljóðganga í skógi. Þátttakendur hlusta sig inn í skóginn og upplifa tengsl trjánna hvert við annað og manneskjuna. Hvernig er skógurinn í þínu nærumhverfi og hversu vel tekur þú eftir trjánum í kringum þig, veistu hvað þau heita? Hefur þú faðmað tré? Í BRUM gefst þér tækifæri til að fara inn fyrir börkinn og kynnast trjánum á áður óþekktan máta.

Trén í skóginum eru flytjendur verksins og leiða áhorfendur í gegnum ferðalag þar sem þau miðla djúpri vitneskju tilvistar sinnar sem á ævintýralegan hátt endurspegla samfélag manna. Áhorfandinn leggur af stað í leiðangur einsamall eða í félagsskap náinna ferðalanga. Í BRUM gefst áhorfandanum tækifæri á að hverfa tímabundið úr mannmiðjaðri hugsun og slaka inn í augnablikið sem skógurinn hefur uppá að bjóða í hvers kyns veðráttu sem ríkir. Trén hafa áhrif á skynjun áhorfandans í skóginum, mótandi og stýrandi, til dæmis með því að láta áhorfandann leika, snerta, tala, syngja, liggja og upplifa. 

Verkið var frumsýnt í september 2020 og tekið upp aftur í ágúst/september 2021

BRUM
Höfundar: Andrea Elín Vilhjálmsdóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter, Harpa Arnardóttir, Kara Hergils
Tónsmiður: Ragnheiður Erla Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri / framleiðandi: Kara Hergils

Previous
Previous

The Last Kvöldmáltíð

Next
Next

Neind Thing