The Last Kvöldmáltíð

Ljósmynd: Margrét Seema Takyar

Ljósmynd: Margrét Seema Takyar

The Last Kvöldmáltíð eftir Kolfinnu Nikulásdóttur í uppsetningu leikhópsins Hamfarir.

The Last Kvöldmáltíð er heimsenda- og hamfarasýn. Leikritið gerist eftir hrun mannlegs samfélags og fjallar um fimm manna fjölskyldu sem býr á botni tómrar sundhallar í Reykjavík, einangruð frá umheiminum. Fjölskyldan reynir að halda í hefðir samfélagsins sem þau tilheyrðu áður, jafnvel þó að þau muni ekki endilega hvernig það samfélag var. Þau gera allt til þess að horfast ekki í augu við sjálfan sig og hvaða áhrif gjörðir þeirra hafa haft á heiminn. Hvort er betra að stytta sér stundir eða stytta sér aldur? Eina leiðin út er algjör breyting á hugsun og lífsháttum. Geta þessar fimm manneskjur farið að lifa lífinu á annan og nýjan hátt og þar með bjargað mannkyninu og heiminum?

Leikverkið var frumsýnt 11. mars árið 2021 í Tjarnarbíói og hlaut það fjórar Grímutilnefningar sama ár.

The Last Kvöldmáltíð
Höfundur: Kolfinna Nikulásdóttir
Leikstjóri: Anna María Tómasdóttir
Leikarar: Albert Halldórsson, Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Ólafur Ásgeirsson og Ragnar Ísleifur Bragason
Tónlist og hljóðmynd: Salka Valsdóttir
Leikmynd: Brynja Björnsdóttir
Búningar: Brynja Skjaldardóttir
Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson
Tæknimaður: Þóroddur Ingvarsson
Sviðsstjóri: Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir
Framleiðandi: Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Previous
Previous

KOK

Next
Next

BRUM