Fúsi: Aldur og fyrri störf

Fúsi: aldur og fyrri störf, er heimildaleiksýning um Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson. Í sýningunni fer Fúsi yfir ævi sína og valin atriði úr fjölbreyttu lífi hans eru færð í leik- og söngbúning með aðstoð leikara og söngvara.

Fúsi er húmoristi, fótboltaáhugamaður, leikari, söngvari og lífskúnstner sem minnir okkur á að lífið er alltaf þess virði að lifa því þó að stundum sverfi að. Hindranirnar í lífi Fúsa hafa eflt hann og hvatt hann til að lifa lífinu til hins ítrasta með fötlun sinni og njóta hvers einasta dags. Stundum er lífsreynsla þó þess eðlis að aldrei verður fyllilega hægt að komast yfir hana, sama hversu jákvæður og sterkur einstaklingur er.

Sýningin byggir á viðtölum við Fúsa, sem Agnar Jón frændi hans og leikstjóri sýningarinnar tók við hann á meðan covid faraldrinum stóð. Tilurð sýningarinnar er því samband frændanna Fúsa og Agga og samverustundir þeirra.

Verkið var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins 17. nóvember 2023 og er samstarfi sviðslistaframleiðandans Monochorme, List án landamæra afmælisárið 2023 og Borgarleikhússins.

Verkið er túranlegt

Fúsi: Aldur og fyrri störf
Höfundar: Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson
Leikstjórn: Agnar Jón Egilsson
Aðstoðarleikstjórn: Ástbjörg Rut Jónsdóttir
Leikmynd og búningar: Svanhvít Thea Árnadóttir
Tónlist: Egill Andrason - starfsnemi við LHÍ
Leikarar: Agnar Jón Egilsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Vala Kristín Eiríksdóttir. Í janúar 2024 komu þau Bergur Þór Ingólfsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir inn fyrir þau Halldóru og Völu Kristínu.
Grafísk Hönnun: Ragnar Visage
Ljósmyndun: Leifur Wilberg Orrason
Upptaka og hönnun kynningarmyndbands: Björgvin Sigurðsson
Framleiðsla: Davíð Freyr Þórunnarson fyrir List án landamæra / MurMur productions

Previous
Previous

Piparfólkið

Next
Next

Stroke