List án landamæra

Af sýningu Láru Lilju í Gallery Port 2018

Af sýningu Láru Lilju í Gallery Port 2018

Nokkrir af fyrrum listamenn hátíðarinnar. Frá vinstri, Ísak Óli (2012), Erla Björk (2016), Sigrún Huld (2013) og GÍA (2017)

Nokkrir af fyrrum listamenn hátíðarinnar. Frá vinstri, Ísak Óli (2012), Erla Björk (2016), Sigrún Huld (2013) og GÍA (2017)

List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list fatlaðs fólks. Hátíðin var fyrst haldin árið 2003 á Evrópuári fatlaðra og hefur verið haldin árlega síðan. Hátíðin sýnir öll listform og stendur fyrir samstarfi á milli listamanna. Hátíðin er eini vettvangurinn á Íslandi sem leggur alfarið áherslu á listsköpun fatlaðs listafólks og hefur skapað sér sérstöðu innan menningarlífsins á Íslandi. Æ fleiri verða meðvitaðir um gildi hátíðarinnar í samfélaginu. Með því að skapa vettvang skapast tækifæri og leiðir opnast, jafnvel inn á nýjar brautir. Með því að leiða saman ólíka hópa og einstaklinga opnast alltaf fleiri og fleiri dyr og tækifæri. Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni. Sýnileiki hefur bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum.

Hátíðin hefur stuðlað að samstarfi á milli ólíkra hópa og m.a. verið í samstarfi við listasöfn, starfandi listafólk, leikhópa og tónlistarfólk. Hátíðin hefur einnig stuðlað að umræðu um ímynd fatlaðra listamanna í listum og list fatlaðra m.a. í samvinnu við Háskóla Íslands, Þjóðminjasafnið og Norræna húsið. List án landamæra leggur áherslu á að list fatlaðs listafólks sé metin til jafns innan listheimsins og list ófatlaðs listafólks.

List án landamæra hlaut Múrbrjót Þroskahjálpar árið 2009 og var tilnefnd til Hvatningaverðlauna ÖBÍ árið 2011. Árið 2012 fékk List án landamæra Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar.

Ragnheiður Maísól Sturludóttir var listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hátíðarinnar frá janúar 2017 til febrúar 2020. 

Davíð Freyr Þórunnarson er framkvæmdastjóri hátíðarinnar árið 2021.

Previous
Previous

Myrkrabörn

Next
Next

Myrkir músíkdagar 2021