Marat Sade

Marat Sade í uppsetningu Lab Loka, í samstarfi við Borgarleikhúsið og MurMur Productions.

Bæling og losti, kúgun og uppreisn, hinir jaðarsettu gegn valdinu!

Marat/Sade, öðru nafni Ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn De Sade markgreifa, er eitt af öndvegisverkum 20. aldarinnar – marglaga og margslungið í efni og formi. Verkið, sem er eftir þýska leikskáldið Peter Weiss, var fyrst frumsýnt árið 1963 og hefur frá upphafi verið umdeilt og vakið sterk viðbrögð. Hér er leikrit inni í leikriti – vistmenn geðveikrahælisins í Charenton setja á svið verk undir stjórn hins alræmda markgreifa De Sade. De Sade er einnig höfundur leikritsins og sjálfur vistmaður á hælinu. Verkið hverfist um frönsku byltinguna og er þrungið átökum og andstæðum sem endurspeglast í hinum týndu sálum hælisins. Í uppfærslu Lab Loka og Borgarleikhússins á þessu kraftmikla leikriti verður til mögnuð sýning þar sem Nýja sviðið fyllist af mörgum dáðustu en jafnframt elstu listamönnum íslensku þjóðarinnar en þau yngstu eru um sjötugt og þau elstu fast að níræðu. Hér er óhætt að lofa einstakri upplifun og sjónarspili sem seint gleymist.

Verkefnið var stutt af Reykjavíkurborg og Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, bæði úr sviðslistasjóði og launasjóði sviðslistafólks.

Marat Sade var frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins 20. janúar 2023 og sýnt fyrir fullu húsi fram á vor.


Marat Sade
Höfundur: Peter Ulrich Weiss
Þýðandi: Árni Björnsson
Leikstjórn: Rúnar Guðbrandsson
Leikmynd og búningar: Ingibjörg Jara Sigurðardóttir og Filippía Elísdóttir 
Tónlist: Richard Peaslee
Tónlistarstjórn: Guðni Franzson
Lýsing: Arnar Ingvarsson
Sviðshreyfingar: Valgerður Rúnarsdóttir 
Leikmunagerð: Auður Guðmundsdóttir
Búningagerð: Alexía Rós Gylfadóttir
Leikgervi: Ninna Karla Katrínardóttir og Hildur Emilsdóttir 
Hárgreiðslumeistari: Andrea Ruth Andrésdóttir 
Aðstoðarleikstjórn: Sigrún Gylfadóttir
Dresser: Andrea Björk Karelsdóttir
Bargadaþjálfun: Andrea Hörður Harðarson
Hvíslarar: María Sigríður Halldórsdóttir og Thelma Ósk Bjarnadóttir 
Myndataka: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir og Þorlákur Lúðvíksson 
Hönnun á leikskrá og plaggati: Þorlákur Lúðvíksson
Myndbandagerð: Guðbergur Davíðsson og Konráð Gylfason
Framleiðsla: Lab Loki og Davíð Freyr Þórunnarson - MurMur production Kynningarfulltrúi: Kara Hergils - MurMur Productions
Sýningarstjórn: Máni Huginsson

Leikarar: Arnar Jónsson, Arnfinnur Daníelsson, Árni Pétur Guðjónsson,  Ásgeir Gunnarsson,   Eggert Þorleifsson, Guðmundur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Halldóra Harðardóttir, Harald G. Haraldsson, Helga Elínborg Jónsdóttir, Jón Hjartarson, Jórunn Sigurðardóttir, Júlía Hannam, Kristbjörg Kjeld, Margrét Guðmundsdóttir, Sigurður Karlsson, Sigurður Skúlason, Viðar Eggertsson, Þórhallur Sigurðsson, Þórhildur Þorleifsdóttir

Hljóðfæraleikarar: Reynir Jónasson og Reynir Sigurðsson 

Previous
Previous

Hvíta tígrisdýrið

Next
Next

Eyja