Vaðlaheiðargöng

Vaðlaheiðargöng eftir leikhópinn Verkfræðingar í samstari við Borgarleikhúsið.

Tilvistarlegur gleðileikur um brothætt samband manns og náttúru

Verk um stórkostlegustu framkvæmd Íslandssögunnar, um fólk sem svimar aðeins og heldur að aðrir geti mögulega séð að það sé eitthvað tens og sé að stara á það, um fólk sem vill bara að það sé auðveldara að fara austur fyrir.

Verkið Vaðlaheiðargöng er unnið í samsköpun undir listrænni stjórn Karls Ágústs Þorbergssonar. Verkið endurspeglar þá ljóðrænu fegurð sem birtist í framkvæmdasögu Vaðlaheiðarganga, sambandi mannlegs hversdagsleika og náttúru og yfirvofandi endalokum alls í kjölfar hamfarahlýnunar.

Leikhópurinn Verkfræðingar er nýr af nálinni en meðlimir hans hafa getið sér gott orð með fjölbreyttum sýninga sviðslistahópa á borð við 16 elskenda og Sóma þjóðar.

Verkið er unnið í samstarfi við Borgarleikhúsið og var frumsýnt á Nýja sviði hússins 2. febrúar 2024. Verkefnið er styrkt af Menningar- og viðskiptaráðuneytinu og starfslaunasjóði listafólks

Vaðlaheiðargöng

Listræn stjórnun og leikstjórn: Karl Ágúst Þorbergsson
Leikmynd og búningar: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Tónlist: Gunnar Karel Másson
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánssonl
Leikarar: Aðalbjörg Árnadóttir, Hilmir Jensson og Kolbeinn Arnbjörnsson
Sviðsmanneskja: Unnur Guðrún Þórarinsdóttir
Grafísk hönnun: Björn Snorri Rosdah
Ljósmyndir: Owen Fiene
Hönnun og upptaka kynningarefnis: Hallur Örn Árnason
Framleiðandi: Davíð Freyr Þórunnarson - MurMur productions

Next
Next

Aðventa