Aðventa

Sígild skáldsaga í nýrri og óvenjulegri uppfærslu sviðslistahópsins Rauða sófans.

„Maður þvælist með hundi og hrút um öræfin í desember, leitar að kindum, hreppir slæm veður en kemst lifandi til byggða …“ Svo segir rithöfundurinn Jón Kalman frá í formála þessarar perlu íslenskrar bókmenntasögu, Aðventu Gunnars Gunnarssonar.

Aðventa er þó svo miklu meira en saga af kindaleit í vondu veðri, því óveður geisa líka innra með fólki. Í sögunni býr harmræn ástarsaga, leit mannsins að trú og tilgangi, afturlit til ævi sem styttist í annan endann og sú sátt sem hverjum manni er nauðsyn að ná við fortíðina svo lifa megi af en farast ella. Þá er sagan óður til náttúrunnar og dýranna og þeim djúprætta kunnugleik sem líklega næst aðeins milli fjarskyldra dýrategunda.

Í uppsetningu Sviðslistahópsins Rauða sófans er leitast við að miðla þáttum verksins – stórfenglegri náttúru, ríku innra lífi aðalsöguhetjunnar og samspilinu þar á milli. Sú óvenjulega leið er farin að hafa sýninguna að mestu án orða en þess í stað mynda tónlist, myndlist, leiklist og tækni órofa heild. Áhorfandinn dregst inn í iðandi stórhríð en sér þar hjörtu sem bjarma frá sér kærleika og ást.

Sýningin er unnin í samstarfi við Borgarleikhúsið og frumsýnd á Nýja sviði hússins 3. desember 2023 og verður tekin upp aftur í lok árs 2024.

Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði, Launasjóði sviðslistafólks og Gunnarsstofnun.

Aðventa

Höfundur: Gunnar Gunnarsson
Leikgerð: Móeiður Helgadóttir og Egill Ingibergsson
Leikstjórn: Egill Ingibergsson
Leikmynd og teikningar: Þórarinn Blöndal, Móeiður Helgadóttir og Egill Ingibergsson
Búningar og leikgervi: Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Sigurður Halldórsson
Leikarar: Friðgeir Einarsson og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
Kór: Kvennakórinn Katla
Aðstoðarleikstjórn: Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Tæknimaður: Magnús Thorlacius
Framkvæmdastjórn: Davíð Freyr Þórunnarson

Previous
Previous

Vaðlaheiðargöng

Next
Next

Piparfólkið