Vakúm

 

Vakúm eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur í uppsetningu Milkywhale

Poppópera um lofttæmingu

Vakúm merkir lofttæming eða tómarúm og tengja margir vakúmpakkningum eða vakúmryksugum. Vakúm er einnig hugtak í eðlisfræði og á við rými sem inniheldur hvorki neitt efni né nokkra rafsegulgeislun og hefur loftþrýsting 0 Pa. Í tómi örsamfélagsins Vakúms standa fimm söngvarar og dansarar á sviði og takast á við það verkefni að skapa eitthvað úr engu; regla verður að óreiðu, samhverf og ósamhverf mynstur verða til, þögnin fæðir af sér söng. 

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, danshöfundur, hefur í fyrri sviðsverkum leitast við að varpa nýrri sýn á samband og möguleika þessara tveggja miðla; tónlistar og danslistar.

Frumsýnt 12. apríl 2018 í Tjarnarbíó.

Vakúm
Höfundur: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir 
Tónlist: Árni Rúnar Hlöðversson 
Flytjendur: Auðunn Lúthersson, Ásgeir Helgi Magnússon, Elísa Lind Finnbogadóttir, Gunnar Ragnarsson og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir 
Texti: Auður Ava Ólafsdóttir 
Leikmynd og búningar: Magnús Leifsson og Arnar Ásgeirsson 
Dramatúrg: Halldór Halldórsson 
Kór og kórútsetningar: Kristjana Stefánsdóttir 
Ljósahönnun: Hafliði Emil Barðason 
Hljóðhönnun: Kristinn Gauti Einarsson 
Framkvæmdastjóri: Ragnheiður Maísól Sturludóttir

 
Ljósmynd: Art Bicnic

Ljósmynd: Art Bicnic

Previous
Previous

Velkomin heim

Next
Next

Þórbergur