
Þoka
Þoka er íslensk/færeysk leiksýning fyrir börn sem leikur á mörkum vísinda og þjóðsagna. Sýningin fjallar um náttúrufyrirbrigðið þoku, sem er þegar öllu er á botninn hvolft lítið annað en sveimur örsmárra vatnsdropa, ský sem liggur við jörðu.

Forspil að framtíð
Forspil að framtíð eftir Ævar Þór Benediktsson og Kjartan Ólagsson er blanda af sögustund og leiksýningu þar sem ævintýri af Norðurlöndunum eru sett á svið. Með aðstoð gervigreindar verður til hljóðheimur sem á engan sinn líka. Hefurðu einhvern tímann velt því fyrir þér hvernig ísbjarnakór myndi hljóma? En hefurðu heyrt Norðurljósin syngja? Falleg og skemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna og þá helst meðlimi á bilinu 4 - 8 ára.

Manndýr
Manndýr er nýtt barna- og þátttökuverk eftir Aude Busson. Verkið skoðar hlutverk manneskjunnar í heiminum með augum barna, en verkið og hljóðmynd þess er að miklu leyti byggt á viðtölum Aude við börn.

Blóðuga kanínan
Blóðuga kanínan eftir Elísabetu Jökulsdóttur er tragíkómískt leikrit um áföll og afleiðingar þeirra. Sett upp í samtarfi við Fimbulvetur og sýnt í Tjarnarbíói