Lóaboratoríum

 

Lóaboratoríum eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, í uppsetningu leikhópsins Sokkabandið.

Fjórar mis-starfhæfar konur í tveimur íbúðum þurfa að þola hverja aðra í ótilgreindan tíma. Tvær þeirra eru systur en hinar mæðgur. Íbúðirnar eru í hverfi í Reykjavík. Kannski eru þær staddar við holt, gerði, götu, fell, stíg eða hvarf, það skiptir ekki máli. Konunum er alveg sama. Þær munu hvort eð er aldrei læra að hegða sér á viðeigandi hátt.

Lóaboratoríum er íslenskt leikverk eftir höfund samnefndra myndasagna. Leikritið var samið fyrir og í samstarfi við Sokkabandið.

Sokkabandið hefur getið sér gott orð með uppsetningu kraftmikilla og nýstárlegra íslenskra verka t.d. söngleiksins Hér og nú sem boðið var á leiklistarhátíðina í Tampere í Finnlandi og Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur.

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er myndlistarmaður, teiknari, tónlistarkona og rithöfundur. Hún hefur gefið út skopmyndabækur undir nafninu Lóaboratoríum þar sem hún skoðar samtímann og hversdagsleikann með beinskeittum húmor sínum. Leikverkið Lóaboratoríum er byggt á teiknimyndasögunum og er fyrsta leikverk Lóu. 

Lóaboratoríum var frumsýnt 26. janúar 2018 í Borgarleikhúsinu.

Lóaboratoríum
Höfundur: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Leikstjóri: Kolfinna Nikulásdóttir
Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Jóhanna Friðrikka Sæmundsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir
Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Árni Rúnar Hlöðversson
Lýsing: Valdimar Jóhannsson
Sviðshreyfingar: Ásrún Magnúsdóttir
Markaðs- og kynningarmál: Ragnheiður Maísól Sturludóttir

 
Ljósmynd: Þorbjörn Þorgeirsson

Ljósmynd: Þorbjörn Þorgeirsson

Previous
Previous

Þær spila blak

Next
Next

Kæra manneskja